„Þegar stórt er spurt í morgunsárið,“ sagði orkumálastjórinn Halla Hrund Logadóttir í samtali við mbl.is í Leifsstöð í morgun.

Halla Hrund er á leið til Wroclaw í Póllandi til þess að styðja íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu gegn Úkraínu í úrslitum umspils um sæti í lokakeppni Evrópumótsins 2024 sem fram fer í Þýskalandi í sumar.
Halla Hrund hefur verið orðuð við forsetaframboð undanfarna daga en hún gaf það út á Facebook í gær að hún ætlaði sér að nýta páskana í það að íhuga framboðið gaumgæfilega.
„Eigum við ekki að byrja á leiknum og sjá svo hvað setur,“ sagði Halla Hrund þegar hún var spurð að því hvort hún væri á leið í forsetaframboð.
„Er ekki ákveðin fylgni þar á milli?“ sagði Halla Hrund svo þegar undirritaður spurði hvort hún færi ekki í framboð ef Ísland ynni Úkraínu en nánar er rætt við Höllu í myndbandinu hér fyrir ofan.
Leikurinn hefst klukkan 19.45 að íslenskum tíma og verður í beinni textalýsingu á mbl.is.