Meirihluti íslensku þjóðarinnar er óánægður með áform Landsbankans um kaup á TM. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Prósents.

Þar var spurt „Hversu ánæg/ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) eru með áform Landsbankans um kaup á tryggingarfélaginu TM?“
55% svarenda sögðust óánægð með áformin, 32% svöruðu hvorki né en aðeins 13% sögðust vera ánægð.
Aðeins 7% kvenna sögðust ánægðar með áformin en 18% karla. 49% karla sögðust óánægðir en 32% svöruðu hvorki né.
60% kvenna sögðust óánægðar en 33% svöruðu hvorki né.
Mesta óánægjan mældist hjá aldurshópnum 35-44 ára. Er sá aldurshópur marktækt óánægðari heldur en þau sem yngri eru og þau sem eru 45-54 ára, að því er segir í niðurstöðum Prósents.