Þorbjörg er þingmaður Viðreisnar í Reykjarvíkurkjördæmi norður og er skemmtilegri en flestir og þekkt fyrir að vera hrókur alls fagnaðar.
Þorbjörg er þingmaður Viðreisnar í Reykjarvíkurkjördæmi norður og er skemmtilegri en flestir og þekkt fyrir að vera hrókur alls fagnaðar.
Þorbjörg er þingmaður Viðreisnar í Reykjarvíkurkjördæmi norður og er skemmtilegri en flestir og þekkt fyrir að vera hrókur alls fagnaðar.
Hún hefur mikla ánægju að matreiða góðan mat og njóta með fjölskyldu og vinum. Það ætlar hún að gera um páskana og gefur hér lesendum matarvefsins uppskriftina að páskamáltíðinni sinni, að páskalambinu, leyndardómsfullu uppskriftinni að Primadonnu smælkinu og páska-bernaise sósunni sem er gerð í samstarfi tveggja með ást og natni. Síðan er það salatið sem boðar vorið.
„Mér finnst páskarnir algjörlega frábær tími. Gott frí og róleg hátíð sem einkennist auðvitað af súkkulaði en hjá okkur er minna um alveg fast mótaðar hefðir. Við erum yfirleitt bara heima yfir páskana, förum í sund og kannski að ég fái vinkonur heim í bröns,“ segir Þorbjörg og brosir.
Aðspurð segist Þorbjörg skreyta heimilið fyrir páskana, á stílhreinan og einfaldan hátt. „Það standa skreyttar páskagreinar í vasa og ég kaupi gula túlípana á þessum tíma ársins. Og splæsi í gul kerti. En ég föndra ekki páskaskraut en í gegnum tíðina hafa stelpurnar komið heim með páskaskraut sem þær hafa föndrað í leikskólanum og seinna í skólanum. Sum þessara listaverka eru enn til og eru sett á borðstofuborðið. Annað skraut dætranna hefur látið lífið í samskiptum við heimilisköttinn Símon sem hefur verið dálítið grimmur í páskaskrautinu þó jólin séu hans besta hátíð hvað það áhugamál varðar,“ segir Þorbjörg og hlær enda heimiliskötturinn oft uppátækjasamur.
Hvað með páskaeggjaát, eigið þið fjölskyldan ykkar uppáhaldspáskaegg?
„Heimsmyndin er flóknari en áður var. Úrvalið er orðið svo mikið ég hef þurft að fara með glósur frá dætrunum í búðina. Ég kaupi páskaegg af miða og í samræmi við fyrirmæli. Lausleg könnun heima fyrir segir að í ár verði keypt hefðbundið páskaegg, með saltkaramellu og eitthvað með lakkrís. Þegar Þorbjörg er spurð út í hvort hún eigi minningar frá páskunum á sínum bernskuárum segist hún vel eftir því hvað hún gerði við sín páskaegg. „Ég man eftir einhverjum furðulegum metnaði til að eiga páskaeggið mitt mjög lengi. Og að hafa látið það standa lengi óopnað. Það er hugmyndafræði sem ég hef kvatt fyrir löngu,“ segir Þorbjörg og brosir glettnislega.
Eftirminnilegasti málshátturinn?
„Sko, ég gæti aldrei í lífinu munað hvaða málshættir hafa verið að detta inn í gegnum tíðina því ég man varla hvað ég var að gera í gær. En ég bar þessa spurningu undir Maríu Guðrúnu, 11 ára dóttur mína, sem segir að sá besti sé: „Enginn verður feitur af einum bita.“
Í matinn á páskadag ætlar Þorbjörg að bjóða upp á páskalamb með dýrindis Primadonnu kartöflum, mandarínu- og perusalati og heimalagaðri bernaise sósu. „Lambið útskýrir sig sjálft held ég. Það er bara fátt betra en íslenska lambakjötið og páskalambið auðvitað mjög víða á borðum um páskana. Lambafile varð fyrir valinu hjá okkur. Með lambinu eru rauðar smælki kartöflur sem eru vinsælar jafnt hjá manni sem dætrum mínum. Salatið var einhver viðleitni til að hafa það dálítið vorlegt og hér voru til bæði mandarínur og perur. Síðan erum við bara svo montin af bernaise sósunni okkar að það kom ekki annað til greina en að segja frá henni,“ segir Þorbjörg að lokum.
Páskalamb með Prímadonnu-kartöflum, mandarínu- og perusalati og bernaise sósu
Lambið
Ég held að það sé ekki ástæða til að segja Íslendingum hvernig á að elda lamb, en ég kaupi oft lambafile í Kjötbúðinni á Grensásvegi, ýmist hreint eða marínerað.
Primadonnur
Kartöflur með trufflu majónesi og Primadonnu osti
Aðferð:
Peru- og mandarínusalat
Aðferð:
Páska-bernaise sósan, sem er auðvitað í gulum páskalit
Aðferð: