Það væsir ekki um matargyðjuna Lindu Benediktsdóttur um þessar mundir, en hún er stödd í sólinni á Alicante á Spáni þar sem hún nýtur þess að spila golf á einum flottasta golfvelli Costa Blanca-strandarinnar.

Linda birti flotta og sólríka myndaröð af sér á golfvellinum á Instagram-síðu sinni með yfirskriftinni: „Golflífið“, en af myndum að dæma er hún alsæl enda leikur veðrið við hana og varla ský á lofti.
Las Colinas-golfvöllurinn þykir með þeim bestu og flottustu á svæðinu, en hann var hannaður af Cabell Robinson sem er með fremstu golfvallahönnuðum Evrópu. Svæðið liggur eftir fögrum dal og er með fallegu útsýni í átt að sjónum.
Golfvöllurinn er par 71, 18 holu meistaramótsvöllur sem hentar öllum færnistigum. Umhverfið er afar aðlaðandi, en á vellinum sjálfum má sjá tré, læki, vötn og sanda sem fegra ekki einungis svæðið heldur bjóða golfurum upp á skemmtilegar áskoranir.