Annasamt hjá áhöfnum Landhelgisgæslunnar

Landhelgisgæslan | 9. apríl 2024

Annasamt hjá áhöfnum Landhelgisgæslunnar

Áhafnir beggja varðskipa Landhelgisgæslunnar hafa sinnt störfum á Þór þar sem Freyja hefur verið í viðhaldi að undanförnu, en aðeins ein áhöfn er á hverju skipi.

Annasamt hjá áhöfnum Landhelgisgæslunnar

Landhelgisgæslan | 9. apríl 2024

Annasamt hefur verið hjá áhöfnum Landhelgisgæslunnar að undanförnu, en báðar …
Annasamt hefur verið hjá áhöfnum Landhelgisgæslunnar að undanförnu, en báðar áhafnirnar starfa nú tímabundið á Þór. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Áhafnir beggja varðskipa Landhelgisgæslunnar hafa sinnt störfum á Þór þar sem Freyja hefur verið í viðhaldi að undanförnu, en aðeins ein áhöfn er á hverju skipi.

Áhafnir beggja varðskipa Landhelgisgæslunnar hafa sinnt störfum á Þór þar sem Freyja hefur verið í viðhaldi að undanförnu, en aðeins ein áhöfn er á hverju skipi.

Fram kemur í færslu á Facebook-síðu stofnunarinnar að „síðustu dagar hafa verið annasamir um borð í Þór en áhöfnin var meðal annars til taks á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu um liðna helgi.“

Þá hafi einnig töluvert verið umæfingar og fóru fram æfingar í reykköfun og notkun línubyssu í síðustu viku. Auk þess var á síðustu dögum og vikum farið um borð í þrettán skip og báta í tengslum við hefðbundið eftirlit.

Æft var í notkun línubyssu.
Æft var í notkun línubyssu. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

„Í flestum tilfellum hefur allt verið eftir bókinni en smávægilegar athugasemdir um lagfæringar þurfti að gera hjá einhverjum.“

Páskadag var haldið hið árlega páskabingó um borð þar sem spilaðar voru níu umferðir og glæsilegir vinningar í boði. „Áhöfnin vill þakka velunnurum sérstaklega fyrir að leggja þessari árlegu uppákomu lið,“ segir að lokum í færslunni.

Reykköfun þarf að æfa reglulega.
Reykköfun þarf að æfa reglulega. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Áhöfnin var ánægð með páskabingóið.
Áhöfnin var ánægð með páskabingóið. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
mbl.is