Við Laxalæk á Selfossi er að finna 308 fm einbýli á einni hæð. Húsið var reist 2009 og var vandað til verka þegar það var byggt. Húsið er í eigu Eggerts Kristinssonar listamanns en þar býr hann ásamt eiginkonu sinni, Maríu Ólafsdóttur, sem er einnig listamaður. Hún rak áður Gallerí Thors í Hafnarfirði en hann er gullsmiður og listmálari.

Eldhús og stofa eru í sameiginlegu rými en í eldhúsinu eru sérsmíðaðar innréttingar. Gott skápapláss er í eldhúsinu og á eyjunni er Coríanborðplata sem er smekklega hönnuð. Innréttingarnar eru bæði úr eik og hvítar sprautulakkaðar. Skolvaskur er í eyjunni og helluborð með háfi. Í eldhúsinnréttingunni eru tvöfaldir ísskápar með frysti og innbyggðri uppþvottavél.
Flísar og parket eru á gólfinu og mætast þau í eldhúsi og stofu. Stórir gluggar prýða húsið og hleypa fallegri birtu inn í rými þess.
Heimilið er einstaklega smekklega innréttað með fallegum munum. Fyrir framan eldhúsið er hringlaga borð með voldugum tréfæti. Sjöur frá Arne Jacobsen eru við borðið ásamt tréstólum úr Heimili og Hugmyndir. Fyrir ofan borðið er vegglampi frá Flos.
Hlutum og listaverkum er fallega komið fyrir í húsinu og er hrein unun að skoða myndirnar sem Kristján Orri Jóhannsson hjá Eignamyndbönd.is tók fyrir fasteignasöluna.