Óholl loftgæði mælast við Bláa lónið, sem er lokað fyrir vikið og opnar ekki aftur fyrr en kl. 14. Mengunin kemur frá eldgosinu í Sunhnúkagígaröðinni.

„Það er að koma mikil gasmengun frá þessu gosi. Veðrið, vindáttin og vindurinn eru það sem er að stafa að þessari mengun,“ segir Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
Mælar Umhverfistofnunar sýna brennisteinsmengun nálægt lóninu. Til þess að loftgæði teldust góð þyrfti mengunin að mælast minni en 350 míkrógrömm á rúmmetra, helst engin að sjálfsögðu.
„Þar sem veðurskilyrði eru óhagstæð í dag, sunnudaginn 14. apríl, og hafa mögulega neikvæð áhrif á loftgæði verða allar okkar starfsstöðvar lokaðar til kl. 14,“ segir í tilkynningu á vef Bláa lónsins.
Lónið þurfti einnig að loka vegna mengunar fyrr í vikunni.