Ein af mínum uppáhaldsmatarupplifunum og samverustundum með fjölskyldunni er að fara í saman í dögurð eða bröns eins og margir nefna það. Ég fer reglulega með fjölskyldu minni í dögurð um helgar og ef ekki býð ég gjarnan heim í dögurð. Á næstu vikum er stefnan að heimsækja nokkra staði sem bjóða upp á dögurð eða bröns og smakka hvað í boði er.

Á dögunum heimsótti ég Bryggjuna Brugghús við Grandagarð 8 og fór í smakk á glænýjum brönsseðil staðarins. Nýir eigendur tóku við Bryggjunni fyrir skömmu síðan og hafa farið í miklar breytingar á matseðlum staðarins og áherslum á drykkjaseðli og bjórframreiðslu. Eftir breytingarnar er einnig lögð áhersla er að bjóða upp á ljúfa fjölskyldustemningu um helgar í hádeginu og brönsseðil þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í fallegu umhverfi við höfnina. Útsýnið við bryggjuna er milljón dollara virði og stórbrotið að sitja við gluggann og njóta útsýnisins sem er síbreytilegt líkt og lifandi málverk.
Brönsseðill Bryggjunnar Brugghús er innblásinn af árstíðabundnu hráefni og kokkarnir leggja áherslu á að nota besta fáanlega hráefni hverju sinni, hvort sem er af landi eða láði eins og þeir orðuðu það þegar ég spurði um hráefnavalið. Það var gaman að upplifa og sjá að kokkarnir í eldhúsinu eru óhræddir við að taka áhættu og prófa mismunandi samsetningar hráefnis og bragðs.
Brönsseðillinn er hinn girnilegasti og er með frönsku og belgísku ívafi tvista við íslenskt hráefni á frumlegan hátt. Aðaláherslan er lögð á Egg Benedict sem borið er fram með mismunandi kræsingum sem leika við bragðlaukana. Ég smakkaði allar tegundirnar þar sem hleypt egg var í forgrunni ásamt Bryggju Hollandaise-sósan sem var einstaklega góð. Hleypt egg eru hreinn unaður fyrir bragðlaukana að njóta og parast vel með kaldri Mímósu sem hægt er að fá bæði óáfenga eða áfenga. Fyrir þá sem elska öl er hægt að panta bjórsmakk og fara í ævintýraför með öli.
Ég byrjaði á Egg Benedict með leturhumri borið fram á bricochebrauði, með hleyptu eggi, döðlupestó, klettasalati og aspas. Samsetningin var eftirminnileg og bragðaðist ótrúlega velt. Síðan smakkaði ég Egg Benedict með hunangsskinku og íslenska ostinum Feyki en þetta var borið fram á bricochebrauði ásamt sama meðlæti og líkt fyrri rétturinn, alveg dásamleg gott. Í boði voru líka argentínskar risarækjur sem bornar eru fram á bricochebrauði með salsa verde, fennelsalati og Hollandaise-sósu sem var bæði létt og froðukennd. Ómótstæðilega góð samsetning og passar vel saman.
Síðan smakkaði ég avókadó á ristuðu súrdeigsbrauði sem var borið fram með tómatsalsa, klettasalati, basil-pestó og hleyptu eggi sem bráðnaði í munni. Það er líka hægt að fá avókadó súrdeigsbrauðið án eggs ef vill. Þessi bragðsamsetning og áferð gleður í upphafi dags. Matarmiklar belgískar vöfflur með kjúklingalæri bornar fram með sterkri hunangssósu eru jafnframt í boði og eru syndsamlega góðar og duga manni út daginn. Loks fékk ég smakk af bleikju á bricochebrauði sem borin var fram með hleyptu eggi og þessari dásamlegu Hollandaise-sósu sem er ein sú besta sem ég hef smakkað. Áferðin á sósunni er svo létt og froðukennd og leyfir hráefninu eins og bleikjunni að njóta sín meira fyrir vikið.
Eftirréttirnir á brönsseðlinum eru ekki síðri og það sem heillaði mig mest voru íslensku pönnukökurnar með bræddu súkkulaði og nutella, algjört sælgæti.
Það sem heillaði mig við staðinn var þetta fjölskylduvæna umhverfi, lögð er áhersla á að fjölskyldur geti komið saman að njóta og að vel fari um alla. Þjónustan var til fyrirmyndar og allir réttirnir stóðust mínar væntingar og glöddu mitt matarhjarta.