Sandra Björg og Hilmar eiga von á barni

Meðganga | 15. apríl 2024

Sandra Björg og Hilmar eiga von á barni

Þjálfarahjónin Sandra Björg Helgadóttir og Hilmar Arnarson eiga von á sínu fyrsta barni saman. Þau tilkynntu gleðifregnirnar með sameiginlegri færslu á Instagram. 

Sandra Björg og Hilmar eiga von á barni

Meðganga | 15. apríl 2024

Sandra Björg Helgadóttir og Hilmar Arnarson eiga von á barni.
Sandra Björg Helgadóttir og Hilmar Arnarson eiga von á barni. Skjáskot/Instagram

Þjálfarahjónin Sandra Björg Helgadóttir og Hilmar Arnarson eiga von á sínu fyrsta barni saman. Þau tilkynntu gleðifregnirnar með sameiginlegri færslu á Instagram. 

Þjálfarahjónin Sandra Björg Helgadóttir og Hilmar Arnarson eiga von á sínu fyrsta barni saman. Þau tilkynntu gleðifregnirnar með sameiginlegri færslu á Instagram. 

Sandra Björg og Hilmar kynntust þegar þau voru í námi í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Þau gengu svo í hjónaband sumarið 2023 við fallega athöfn á Íslandi, en þau voru þá búsett í Los Angels í Kaliforníu þar sem Sandra stundaði MBA-nám. 

Hjónin birtu fallega mynd af sér á ströndinni í Malibu í Kaliforníu þar sem Sandra Björg heldur á sónarmynd. „Draumur að verða að veruleika. Hjartað er stútfullt af þakklæti. Settur dagur 28. september 2024,“ skrifuðu þau við myndina. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar hjónunum innilega til hamingju!

mbl.is