Þurftu að tilkynna nafnið extra snemma

Frægar fjölskyldur | 16. apríl 2024

Þurftu að tilkynna nafnið extra snemma

Atli Bjarnason, stofnandi og eigandi Nóbel námsbúða, og Anna Bergmann markaðsstjóri eignuðust sitt annað barn saman 5. apríl síðastliðinn. Þau tilkynntu nafn sonarins í gær. 

Þurftu að tilkynna nafnið extra snemma

Frægar fjölskyldur | 16. apríl 2024

Fjölskylda Atla Bjarnasonar og Önnu Bergmann stækkaði fyrr í þessum …
Fjölskylda Atla Bjarnasonar og Önnu Bergmann stækkaði fyrr í þessum mánuði! Skjáskot/Instagram

Atli Bjarnason, stofnandi og eigandi Nóbel námsbúða, og Anna Bergmann markaðsstjóri eignuðust sitt annað barn saman 5. apríl síðastliðinn. Þau tilkynntu nafn sonarins í gær. 

Atli Bjarnason, stofnandi og eigandi Nóbel námsbúða, og Anna Bergmann markaðsstjóri eignuðust sitt annað barn saman 5. apríl síðastliðinn. Þau tilkynntu nafn sonarins í gær. 

„Hæ heimur, ég heiti Marinó Bergmann Atlason. Við höldum í hefðina og tilkynnum nafnið extra snemma en í þessu tilfelli er ástæðan sú að einn 2ja ára er hvort sem er búinn að segja öllum nafnið – enda mjög montinn stóri bróðir,“ skrifuðu þau við fallega mynd af syni sínum. 

Atli og Anna kynntust sumarið 2019 og eignuðust sitt fyrsta barn saman, hann Mána, í ársbyrjun 2022, en fyrir á Atli tvö börn, þau Breka og Sunnu. Þau gengu svo í það heilaga á fallegum og sólríkum degi í Fríkirkjunni í Reykjavík í mars síðastliðnum.

Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju með nafnið!

mbl.is