Íslendingar hafa sérstakt dálæti á sundlaugum enda ríkir mikil sundlaugamenning hér á landi. Sundlaugar eru samkomustaður þar sem öll fjölskyldan getur komið saman og notið sín.

Ferðavefur mbl.is tók saman fimm guðdómlegar sundlaugar sem gleðja augað, en þær eiga það allar sameiginlegt að þykja með fegurstu sundlaugum heims samkvæmt ferðatímariti Condé Nast Traveller.
Á Manon Les Suites-hótelinu í Kaupmannahöfn leynist sannkölluð sundlaugaperla – inni í miðju hótelinu er glæsileg innisundlaug umvafin suðrænum gróðri sem skapar einstaka stemningu.
Það er erfitt að toppa sundlaugina við Grand Hotel Tremezzo við Como-vatn á Ítalíu, en sundlaugin flýtur á sjálfu vatninu og veitir guðdómlegt útsýni sem líkist helst málverki.
Þetta lúxus skíðahótel er staðsett í um fjögurra kílómetra fjarlægð frá Meran 2000-skíðasvæðinu á Ítalíu. Þar finnur þú óendanleikasundlaug með einstöku útsýni til fjalla.
Í Antibes í Frakklandi finnur þú einstaka saltvatnslaug í miðjum kletti úr basaltbergi sem býður gestum upp á guðdómlegt útsýni við frönsku riveríuna.
Þetta einstaka hótel er staðsett í Aþenu á Grikklandi. Þar finnur þú þakverönd með glæsilegri sundlaug sem borgin speglast í.