Samfélagsspor Síldarvinnslunnar yfir 10 milljarðar

Síldarvinnslan | 17. apríl 2024

Samfélagsspor starfsemi Síldarvinnslunnar nam 10.619 milljónum króna á síðasta ári. Um er að ræða rúmlega 10% stærra samfélagsspor en árið 2022 og tæp 60% stærra en 2021, en það ár er rekstur dótturfélagsins Vísis ekki reiknað með þar sem það var ekki hluti af samstæðunni.

Rekstur Síldarvinnslunnar er umsvifamikill og var samfélagsspor samstæðunnar meira en …
Rekstur Síldarvinnslunnar er umsvifamikill og var samfélagsspor samstæðunnar meira en tíu milljarðar króna á síðasta ári. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Þorgeir Baldursson

Samfélagsspor starfsemi Síldarvinnslunnar nam 10.619 milljónum króna á síðasta ári. Um er að ræða rúmlega 10% stærra samfélagsspor en árið 2022 og tæp 60% stærra en 2021, en það ár er rekstur dótturfélagsins Vísis ekki reiknað með þar sem það var ekki hluti af samstæðunni.

Samfélagsspor starfsemi Síldarvinnslunnar nam 10.619 milljónum króna á síðasta ári. Um er að ræða rúmlega 10% stærra samfélagsspor en árið 2022 og tæp 60% stærra en 2021, en það ár er rekstur dótturfélagsins Vísis ekki reiknað með þar sem það var ekki hluti af samstæðunni.

Þetta má lesa úr gögnum sem birt eru í samfélagsskýrslu Síldarvinnslunnar, en með samfélagsspori er átt við öll opinber gjöld og skatta sem greiddir eru til hins opinbera vegna starfsemi félagsins.

Samanlagt greiddi Síldarvinnslan 6.303 milljónir króna í skatta og gjöld á síðasta ári og voru innheimtar 4.316 milljónir af starfsfólki og hluthöfum.

mbl.is