Ferskt og gott rauðrófu carpaccio

Uppskriftir | 22. apríl 2024

Ferskt og gott rauðrófu carpaccio

Hér er á ferðinni uppskrift að rauðrófu carpaccio sem á eftir að koma verulega á óvart. Það er syndsamlega gott og hægt er að leika sér með hvaða ost þið viljið vera með í réttinum. Geitarostur bragðast dásamlega vel með og líka Mascarpone-ostur. Þessi réttur er tilvalinn sem forréttur, passar líka vel á smáréttaborðið í matarboði eða í saumaklúbbnum. Uppskriftina birti Hanna Thordarson á uppskriftasíðunni sinni hér en uppskriftin kemur úr smiðju Drífu vinkonu hennar.

Ferskt og gott rauðrófu carpaccio

Uppskriftir | 22. apríl 2024

Ferskt og gott rauðrófu carpaccio sem gleður bæði augu og …
Ferskt og gott rauðrófu carpaccio sem gleður bæði augu og munn. Ljósmynd/Hanna Thordarson

Hér er á ferðinni uppskrift að rauðrófu carpaccio sem á eftir að koma verulega á óvart. Það er syndsamlega gott og hægt er að leika sér með hvaða ost þið viljið vera með í réttinum. Geitarostur bragðast dásamlega vel með og líka Mascarpone-ostur. Þessi réttur er tilvalinn sem forréttur, passar líka vel á smáréttaborðið í matarboði eða í saumaklúbbnum. Uppskriftina birti Hanna Thordarson á uppskriftasíðunni sinni hér en uppskriftin kemur úr smiðju Drífu vinkonu hennar.

Hér er á ferðinni uppskrift að rauðrófu carpaccio sem á eftir að koma verulega á óvart. Það er syndsamlega gott og hægt er að leika sér með hvaða ost þið viljið vera með í réttinum. Geitarostur bragðast dásamlega vel með og líka Mascarpone-ostur. Þessi réttur er tilvalinn sem forréttur, passar líka vel á smáréttaborðið í matarboði eða í saumaklúbbnum. Uppskriftina birti Hanna Thordarson á uppskriftasíðunni sinni hér en uppskriftin kemur úr smiðju Drífu vinkonu hennar.

„Það er ekki oft sem kjötfólkið mitt tekur grænmetisútgáfu af kjöti í sátt en það á einmitt við um þennan rétt.  Þessi réttur kemur frá henni Drífu og má undirbúa daginn áður en þá er bara samsetningin eftir.  Ég baka rauðrófurnar í Hönnupotti en það má líka nota sams konar pott,“ segir Hanna sem er einstaklega hugmyndarík þegar kemur að framsetningu rétta.

Rauðrófu carpaccio

Forvinnsla

Rauðrófurnar má baka 1–2 dögum áður og geyma í kæli.  Það sama má segja um gljáann og salatdressinguna.

Rauðrófurnar

  • 2–3 meðalstórar rauðrófur (u.þ.b. 500 g / 400 g flysjaðar)
  • 1 tsk. saltflögur (fyrir hverja rauðrófu)

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C (blástur).
  2. Flysjið rauðrófur og setjið í Hönnupott eða annað lokað ílát sem þolir að fara í ofn.
  3. Stráið salti yfir og bakið í 50–60 mínútur eða þar til rauðrófurnar eru bakaðar í gegn.
  4. Bökunartíminn fer svolítið eftir stærð þeirra en ágætt er að stinga prjóni í gegn til að kanna hvort þær séu tilbúnar. Það er betra að hafa þær aðeins minna en meira bakaðar. Þær verða skornar mjög þunnt og betra að skera þær þannig. Ef pottur er ekki til má vefja rauðrófunum inn í álpappír en passa að loka vel þar sem vökvi getur lekið úr þeim þegar þær eru bakaðar þannig.
  5. Takið rauðrófurnar út og látið kólna (við stofuhita).  Ef þær eru eldaðar daginn áður og geymdar í kæli yfir nótt er gott að taka þær tímanlega út svo þær nái stofuhita.

Gljái

  • 50 g púðursykur
  • 75 ml vatn
  • ¼ appelsína, safinn
  • 2 tsk. balsamic
  • 10 g smjör

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið í pott og hitið að suðu, sjóðið þar til blandan hefur rýrnað um helming og orðin þykkari.
  2. Látið gljáann kólna.

Salatdressing

  • 5 msk. góð ólífuolía
  • 3–5 dropar sítrónusafi
  • ½ tsk. dijon-sinnep
  • Nokkrar saltflögur

Aðferð:

  1. Blandið saman dijon-sinnepi, salti, olíu og ediki í skál.
  2. Hrærið með písk.

Geitarostasósa

  • 150 g geitarostur (Chavroux-geitarostur) eða Mascarpone-ostur
  • ½–1 tsk. hunang
  • Ögn af salti

Aðferð:

  1. Setjið geitarost og hunang í skál og hrærið saman með písk.
  2. Saltið örlítið.
  3. Þið megið setja sósuna í rjómasprautu eða nota bara skeið til að dreifa yfir.

Samsetning

  • Ristaðar furuhnetur
  • Parmesanostur
  • Klettasalat
  • Ólífuolía

Aðferð:

  1. Ristið furuhneturnar á pönnu, þar til kemur fallegur litur. Leggið þær til hliðar.
  2. Skerið rauðrófurnar niður í örþunnar sneiðar, mikilvægt er að þær séu mjög þunnar. Gott að nota niðurskurðartæki (eins og Mandólín) svo að þær séu sem þynnstar og allar jafn þunnar.
  3. Raðið sneiðunum fallega á disk og penslið gljáanum yfir.
  4. Setjið doppur af geitarosti með skeið eða sprautið yfir hér og þar.
  5. Blandið salatdressingunni saman við klettasalatið og dreifið yfir.
  6. Setjið nokkra dropa af góðri ólífuolíu aðeins yfir hér og þar.
  7. Stráið ristuðum furuhnetunum yfir og að lokum niðurrifnum parmesanosti.
  8. Berið fallega fram og njótið.
mbl.is