Samfélagsmiðlastjörnurnar Sunneva Einarsdóttir, Tanja Ýr Ástþórsdóttir og Sara Jasmín Sigurðardóttir flúðu rigninguna á Íslandi í von um betra veður annars staðar – nánar tiltekið í Lundi í Svíþjóð.

Vinkonurnar eru í sannkallaðri skvísuferð, en þær hafa notið þess að geta skilið jakkann eftir heima þrátt fyrir að hafa þurft að hafa regnhlíf meðferðis – enda töluvert auðveldara að sætta sig við smá rigningu ef það er hlýtt úti.
Þær hafa verið duglegar að birta myndir og myndskeið frá ferðinni á samfélagsmiðlum sínum, en þær byrjuðu ferðina á því að versla sér allar eins skó frá danska tískumerkinu Ganni áður en þær settust niður og fengu sér drykki.