Síðastliðnar vikur og mánuði hafa lesendur matarvefs mbl.is fengið að njóta uppskrifta á hverjum laugardegi sem koma úr hinu leyndardómsfulla eldhúsi í Hússtjórnarskólanum. Skólameistarinn Marta María Arnarsdóttir þar á bæ hefur svipt hulunni af nokkrum vel völdum réttum sem eiga sér sögu og hafa fylgt Hússtjórnarskólanum gegnum tíðina. Uppskriftirnar hafa slegið í gegn hjá lesendum og njóta mikilla vinsælda.

Laugardaginn 11. maí næstkomandi milli klukkan 13:30 og 17:00 verður opið hús í Hússtjórnarskólanum, sem alla jafna er kallaður Húsó, að Sólvallagötu 12 í hjarta borgarinnar. Gestir munu geta að litið á handverkssýningu nemenda ásamt því að gæða sér á kaffihlaðborði með heitu súkkulaði og öllu tilheyrandi sem nemendur standa fyrir. Einnig verður hægt að kaupa heimagerðar sultur, lagkökur, smákökur, nýsteiktar kleinur, hitaplatta, hárteygjur og handavinnupoka svo fátt sé nefnt. Þarna er á ferð kærkomið tækifæri til að heimsækja Húsó en húsið er einstaklega reisulegt og fallegt og híbýlin söguleg.
Þættirnir Húsó voru á skjánum á RÚV í vetur og nutu einnig mikilla vinsælda. Tökurnar fóru að mestu leyti fram í skólanum og gaman verður líka fyrir gesti og gangandi að koma inn í leikmyndina úr þáttunum og endurupplifa stemninguna úr Húsó.
Hægt er að lesa nánar um viðburðinn hér.