Bandaríska leik- og söngkonan Queen Latifah stal senunni á Met Gala-viðburðinum sem fram fór á Metropolitan-safninu í New York-borg á mánudag.

Latifah, sem er 54 ára gömul, mætti ásamt sambýliskonu sinni, dansaranum og danshöfundinum Eboni Nichols, á viðburðinn.
Latifah, þekkt fyrir leik sinn í kvikmyndum á borð við Hairspray, Chicago, Bringing Down the House og Taxi, kýs að halda einkalífi sínu utan sviðsljóssins. Það kom því mörgum á óvart að sjá parið ganga dregilinn hönd í hönd.
Latifah og Nichols hafa verið saman í mörg ár. Þær kynntust árið 2009 við tökur á bandarísku sjónvarpsþáttaröðinni Dancing With the Stars. Parið opinberaði samband sitt fjórum árum síðar.
Latifah og Nichols eiga eitt barn saman, son að nafni Rebel. Drengurinn kom í heiminn árið 2019. Nichols gekk með barnið.