Það er komið sumar og útivistardrottningar landsins eru komnar á kreik. Það er erfitt að toppa útivist í góðum hópi á fallegum sumardegi hér á Íslandi og því prýða óskalista vikunnar tíu vörur sem munu falla vel í kramið hjá sólþyrstum skvísum.

Það er fátt sem jafnast á við góðan hjólreiðatúr með skemmtilegu fólki og í fallegu umhverfi. Það er hins vegar eitt sem getur gert hjólreiðarnar töluvert skemmtilegri – það er fallegt hjól!
Á Íslandi ríkir mikil sundlaugamenning allan ársins hring, en sumarið er þó í sérstöku uppáhaldi hjá mörgum sem fara enn oftar í laugina að synda eða sóla sig á sumrin. Þá er nauðsynlegt að eiga góðan og fallegan sundbol eins og þennan!
Útilegudrottningar landsins verða að eiga flott tjald, enda sofa þær einfaldlega betur í tjöldum sem eru líka falleg. Þetta tjald frá North Face er ekki bara fallegt heldur einnig létt og auðvelt í uppsetningu – það hentar því sérstaklega vel fyrir göngu- og útivistargarpa!
Sannar útivistakonur elska alla útiveru, ekki síst á pallinum uppi í sumarbústað með góðum vinum. Þessi fagri stóll er afar notalegur til að sitja í og njóta góða veðursins!
CC-kremið frá Erborian er fullkomið í snyrtibudduna í sumar og sérstaklega fyrir þá sem ætla að vera á ferðalagi og vilja hafa snyrtirútínuna einfalda en fallega. Kremið dregur úr sýnilegum ójöfnuð í húð og litatón húðarinnar um leið og það gefur fallega þunna þekju. Svo er líka sólarvörn í henni sem útivistardrottningarnar elska!
Þessi taska er fullkomin fyrir svokallað „gym og swim“ sem er sérstaklega vinsælt á sumrin, en þá fer maður fyrst í ræktina og svo í sund – gerist ekki betra!
Útivistardrottningin ætlar að nýta alla sólargeisla sem koma í sumar og getur því ekki eytt hálftíma í að gera krullur í hárið. Hún er hins vegar snjöll og notar þess í stað hitalaust krullusett sem hún skellir í sig á kvöldin og sefur með. Svo vaknar hún með fullkomnar krullur og getur farið beint út í sólina!
Útivistardrottningin er alltaf til í að stoppa og setjast niður með góðan kaffibolla og jafnvel poppa eina kampavínsflösku! Hún er viðbúin öllu og því alltaf með gott piknik-teppi í bílnum eða töskunni.
Þú getur alltaf treyst á klassíkina – eins og þessar flottu og stílhreinu göngubuxur frá 66° Norður.
Að lokum þurfa útivistardrottningar á Íslandi líka að vera raunsæjar því stundum eru veðurguðirnir einfaldlega ekki með okkur í liði. Þá kemur flott regnkápa sér afar vel!