Írski Eurovision-keppandinn Bambie Thug starði beint í myndavélina að loknu atriði sínu í kvöld og mælti: „Ástin mun ávallt sigrast á hatrinu.“ Í atriði háns er margt um andkristileg tákn.

Bambie Ray Robinson, eða Bambie Thug, hafði þegar sent inn kvörtun til Eurovision vegna ummæla lýsanda á ísraelsku sjónvarpstöðinni Kan og sakað sjónvarpsstöðina um brot á reglum.
Ísraelski lýsandinn gerði m.a. athugasemd við kynseginleika Robinsons og sagði áhorfendum að það væri betra að líta undan þegar hán steig á svið þar sem djöfladýrkun væri meginþemað í atriði háns.
„Ég hef lagt fram margar kvartanir til EBU [Sambands evrópskra sjóvarpstöðva] vegna atvika sem ég hef upplifað í vikunni,“ sagði hán á Instagram í dag.
„Fyrr í dag staðfestu þeir fyrir framan aðra við sendinefnd mína að umsjónarmaður Kans hefði brotið siðareglur í undanúrslitum Eurovision,“ segir Bambie Thug.
Hán hefur opinberlega gert athugasemd við þátttöku Ísraels og þegar hán keppti í undanúrslitunum ætlaði hán að stíga á svið með „vopnahlé“ skrifaði á andlit sitt í fornum írskum rúnum. Háni var aftur á móti skipað að fjarlægja skilaboðin.