Gekkst undir legnám aðeins örfáum mánuðum eftir tvöfalt brjóstnám

Instagram | 13. maí 2024

Gekkst undir legnám aðeins örfáum mánuðum eftir tvöfalt brjóstnám

Leikkonan Olivia Munn greinir frá því í nýjasta tölublaði Vogue að hún hafi gengist undir legnám í apríl síðastliðnum til að draga úr framleiðslu á kynhormóninu estrógen. 

Gekkst undir legnám aðeins örfáum mánuðum eftir tvöfalt brjóstnám

Instagram | 13. maí 2024

Leikkonan Olivia Munn er í sambandi með grínistanum John Mulaney. …
Leikkonan Olivia Munn er í sambandi með grínistanum John Mulaney. Saman eiga þau soninn Malcolm. Samsett mynd

Leikkonan Olivia Munn greinir frá því í nýjasta tölublaði Vogue að hún hafi gengist undir legnám í apríl síðastliðnum til að draga úr framleiðslu á kynhormóninu estrógen. 

Leikkonan Olivia Munn greinir frá því í nýjasta tölublaði Vogue að hún hafi gengist undir legnám í apríl síðastliðnum til að draga úr framleiðslu á kynhormóninu estrógen. 

Munn var greind með Luminal B-krabbamein í báðum brjóstum á síðasta ári og gekkst undir tvöfalt brjóstnám aðeins 30 dögum eftir greiningu. Leikkonan ákvað í framhaldi að láta fjarlægja leg, eggjastokka og eggjaleiðara í þeirri von um að minnka líkurnar á að meinið taki sig upp aftur. 

„Þetta var mjög stór og erfið ákvörðun en þetta er ein af bestu ákvörðunum sem ég hef tekið á lífsleiðinni,“ sagði Munn við blaðamann Vogue. „Vinir mínir voru mér til halds og trausts og hughreystu mig þegar þurfti. Þetta var það eina í stöðunni fyrir mig þar sem ég þrái að sjá son minn vaxa úr grasi.“

Munn hélt veikindum sínu leyndum í langan tíma en ákvað að deila sögu sinni í von um að hún verði öðrum víti til varnaðar.

Leikkonan er á góðum batavegi og líður vel. 

View this post on Instagram

A post shared by o l i v i a (@oliviamunn)

mbl.is