Hér er á ferðinni uppskrift að einstaklega góðri fiskiböku sem kemur úr smiðju Höllu Báru Gestsdóttur en hún gerir reglulega uppskriftir fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn. Einnig eru hér hugmyndir að tveimur hvítum sósum sem má nota í réttinn. Þið getið valið þá sósu sem heillar ykkur.
Hér er á ferðinni uppskrift að einstaklega góðri fiskiböku sem kemur úr smiðju Höllu Báru Gestsdóttur en hún gerir reglulega uppskriftir fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn. Einnig eru hér hugmyndir að tveimur hvítum sósum sem má nota í réttinn. Þið getið valið þá sósu sem heillar ykkur.
Fiskibaka að hætti Höllu Báru
- Kartöflumús eða stappaðar kartöflur með smjöri og smá mjólk, eftir smekk
- 4 stk. harðsoðin egg, skerið í bita
- 700 g fiskur að eigin vali eða sjávarfang
- Rifinn gratínostur eftir smekk
Aðferð:
- Byrjið á því að hita ofninn í 200°C.
- Skerið fiskinn í litla bita og dreifið úr honum í eldfast mót.
- Dreifið úr eggjunum yfir fiskinn.
- Hellið sósunni yfir fiskinn og dreifið vel úr henni, hvort sem þið notið þá heitu eða köldu.
- Setjið síðan kartöflumúsina eða stöppuðu kartöflurnar yfir allt saman.
- Stráið loks rifnum osti yfir allt.
- Setjið fatið inn í ofn og bakið í 40-45 mínútur.
- Berið fiskibökuna fram með salati, brauði eða hverju sem hugur ykkar girnist.
Hvít sósa I
- 50 g smjör
- 50 g hveiti
- 6 dl mjólk
- 2 tsk. dijon sinnep
- safi úr hálfri sítrónu
- 50 g rifinn gratínostur
- Salt og pipar eftir smekk
- Saxað spínat eftir smekk. Má mýkja það á pönnu í smá smjöri eða olíu og vökvinn tekinn frá.
Aðferð:
- Bræðið smjör í potti á miðlungshita.
- Hrærið hveiti saman við, látið malla í nokkrar mínútur og hrærið í á meðan eða þar til smjörbollan fer að fá á sig pínu gullinn blæ.
- Hellið mjólk saman við í smá skömmtum og hrærið sósuna til þar til úr verður kekkjalaus jafningur.
- Látið hana malla í nokkrar mínútur á vægum hita.
- Hrærið ost saman við sósuna, látið hann bráðna saman við.
- Smakkið til með salti og pipar.
- Hrærið spínat saman við og blandið vel. Spínatið má fara ferskt og saxað út í sósuna.
Hvít sósa II
- 500 ml sýrður rjómi
- 2 tsk. dijon
- Safi úr hálfri sítrónu
- 50 g rifinn gratínostur
- Salt og pipar eftir smekk
- Ferskt spínat eftir smekk
Aðferð:
- Setjið allt hráefnið saman í skál og hrærið vel saman.
- Bætið við fersku spínati og hrærið vel saman við sósuna.