Íslenska húðvörumerkið Blue Lagoon Skincare hefur opnað verslun á Keflavíkurflugvelli. Af því tilefni var slegið upp litlu teiti í versluninni.

„Ný verslun Blue Lagoon Skincare er glæsileg viðbót í verslunarflóruna á KEF og býður upp á framúrskarandi vöruframboð fyrir bæði Íslendinga og erlenda ferðamenn. Húðvörur Bláa Lónsins eru margverðlaunaðar og þekktar um allan heim og það er frábært að áfram verði hægt að nálgast þær í flugstöðinni þar sem margir vilja gera góð kaup á fríhafnarverði,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslunar og veitinga á Keflavíkurflugvelli í fréttatilkynningu.
Í versluninni er sérstakur húðvörubar þar sem gestir geta prófað vörurnar.
„Við leggjum mikið upp úr skynrænni upplifun gesta okkar í versluninni og er húðvörubarinn hluti af því. Starfsfólk okkar er sérþjálfað til að aðstoða viðskiptavini við val á húðvörum sem henta þeirra húðgerð, svo við hvetjum ferðalanga til að koma við og upplifa,“ segir Eyrún Sif Eggertsdóttir, forstöðumaður verslana hjá Blue Lagoon Skincare í fréttatilkynningu.