Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir hefur heillað heimsbyggðina með fögru söngrödd sinni og heillandi persónuleika, en henni er margt til listanna lagt og nýverið stofnaði hún bókaklúbbinn The Laufey Book Club.

Bókaklúbbinn stofnaði hún í von um að hvetja aðdáendur sína til lesturs, en á dögunum deildi hún sínum þremur uppáhaldsbókum í viðtali við CBC með yfirskriftinni: „Laufey's Life in Books“ eða „Líf Laufeyjar í bókum.“
„Hæ, ég heiti Laufey og þetta er líf mitt í bókum. Bækurnar þrjár sem ég kom með – Anne of Green Gables bara vegna þess að ég held að ást mín á lestri hafi kviknað þegar ég var krakki og ég las þessa bók þegar ég var lítil og elskaði hana svo mikið. Lestur er eitthvað sem vekur aftur, ég býst við fyrir mig vegna þess að við áttum ekki iPad eða ég hafði ekki aðgang að tölvu, það minnir mig bara á barnslega undrun og þess vegna elska ég líka skáldskap,“ segir Laufey í viðtalinu.
„Sum af uppáhaldslögunum mínum sem eru innblásin af bókum, eða ég held að séu innblásin af bókum, eins og Tolerate It með Taylor Swift finnst mér mjög líkt Rebecca eftir Daphne Du Maurier. Hún er í topp tveimur, líklega ein af mínum uppáhaldsbókum sem ég hef lesið,“ bætir hún við.
„Og svo er það Midnight Library sem ég er ekki búin að klára en ég er að lesa hana núna því hún var valin bók mánaðarins fyrir aprílmánuð í The Laufey Book Club,“ sagði hún að lokum.