Maður að nafni Ryan Hamilton elskar fátt meira en að hrekkja eiginkonu sína. Hann birtir reglulega myndbönd á samfélagsmiðlum sem sýna prakkarastrikin, undirbúning þeirra og viðbrögð eiginkonunnar.

Myndböndin hafa vakið mikla athygli hjá netverjum og hefur Hamilton byggt upp stóran fylgjendahóp á Instagram og TikTok.
Einn nýjasti hrekkur Hamilton vakti sérstaka athygli enda þrælskemmtilegur og meistaralega vel gerður.
Myndbandið, titlað „She´ll never make me do laundry again“, sýnir Hamilton fylla þvottaherbergið á heimili þeirra hjóna af froðu en til þess notar hann sérstaka froðuvél. Froðan kaffærir þvottavélina og þurrkarann.
Stuttu seinna kallar hann á eiginkonu sína og segir eitthvað mikið vera að. Hún kemur hlaupandi og fær létt sjokk þegar hún opnar hurðina inn í þvottaherbergið en þar stendur eiginmaður hennar í froðubaði.