Morgunskál með leynigesti

Uppskriftir | 16. maí 2024

Morgunskál með leynigesti

Þegar ég var lítil elskaði ég kaffijógúrt. Eina vandamálið við kaffijógúrtina var hvað hún var fljótt búin. Það var einmitt út af þessu sem ég varð svo óskaplega hamingjusöm þegar ég rakst á kaffiskyr í matvörubúðinni. Það sem það hefur fram yfir kaffijógúrtina sem var vinsæl á níunda áratugnum í Árbænum er að maður verður miklu saddari og svo endist þetta allt saman miklu betur þegar kaffiskyrið hittir hnetusmjör og smá leynigest. 

Morgunskál með leynigesti

Uppskriftir | 16. maí 2024

mbl.is/Marta María Winkel Jónasdóttir

Þegar ég var lít­il elskaði ég kaffijóg­úrt. Eina vanda­málið við kaffijóg­úrt­ina var hvað hún var fljótt búin. Það var ein­mitt út af þessu sem ég varð svo óskap­lega ham­ingju­söm þegar ég rakst á kaf­fiskyr í mat­vöru­búðinni. Það sem það hef­ur fram yfir kaffijóg­úrt­ina sem var vin­sæl á ní­unda ára­tugn­um í Árbæn­um er að maður verður miklu sadd­ari og svo end­ist þetta allt sam­an miklu bet­ur þegar kaf­fiskyrið hitt­ir hnetu­smjör og smá leynigest. 

Talandi um leynigest. 

Þegar maður­inn minn var lít­ill þótti hon­um skyr hræðilega vont. Hann var reglu­lega í pöss­un hjá ömmu­syst­ur sinni sem var bóhem og söng­kona. Hún hafði ekki mik­il fjár­ráð en hún kunni að búa til stemn­ingu og gleði úr litlu.

Þegar hann kom svang­ur heim úr skól­an­um bauð þessi upp­á­halds­frænka oft upp á skyr. Sú gamla fann leið til að fá litla mat­vanda borg­ar­barnið til þess að borða skyr og það gerði hún með því að taka lít­ill súkkulaðimola, skera hann í bita, og bæta út í skyrið. Leik­ur­inn gekk út á það að hann myndi finna leynigest­inn. Áður en hann vissi af var hann bú­inn að háma í sig allt skyrið því hann var svo spennt­ur yfir leynigest­in­um.

Núna þarf ekki að lauma leynigesti út í skyrið til þess að fá hann til að borða það. Hann hám­ar það í sig með bestu lyst og hinir á heim­il­inu reynd­ar líka. Þessi skyrskál er til dæm­is til­val­inn há­deg­is­mat­ur fyr­ir fólk á ferðinni því auðvelt er að grípa með sér það sem til þarf og eng­in fyr­ir­höfn að hræra þessu dýr­indi sam­an og háma í sig. 

Morg­un­skál með leynigesti

  • 1 dós skyr með kaffi­bragði
  • 2 msk. kolla­g­en­duft frá Feel Ice­land
  • 1-2 msk. líf­rænt hnetu­smjör
  • 1 msk. gróf­ar kókós­flög­ur
  • 4 bit­ar af suðusúkkulaði, smátt skorn­ir
  • Blá­ber eft­ir smekk 

Aðferð: 

  1. Setjið skyr í skál og hrærið kolla­g­en­duft­inu út í. 
  2. Setjið hnetu­smjörið út á.
  3. Skreytið með blá­berj­um og kókós­flög­um
  4. Skerið niður súkkulaðibit­ana og bætið út á. 
mbl.is