Tony McFarr, þekktur fyrir að vera staðgengill leikarans Chris Pratt, er látinn, 47 ára að aldri. Slúðurvefsíðan TMZ greindi fyrst frá andláti hans.
Tony McFarr, þekktur fyrir að vera staðgengill leikarans Chris Pratt, er látinn, 47 ára að aldri. Slúðurvefsíðan TMZ greindi fyrst frá andláti hans.
McFarr, sem fannst látinn á heimili sínu í Flórída á mánudag, vann með Pratt í ótal kvikmyndum en þar má helst nefna Guardians of the Galaxy, Passengers og Jurassic Park.
Ekki hefur verið greint frá dánarorsök McFarr.
Pratt minntist félaga síns á samfélagsmiðlum aðeins örfáum klukkustundum eftir að greint var frá andláti hans.