Djúsí ostapasta fyrir nautnaseggi

Uppskriftir | 19. maí 2024

Djúsí ostapasta fyrir nautnaseggi

Það er aldrei hægt að prófa of margar pastauppskriftir. Hér er á ferðinni sértaklega gómsæt pastauppskrift með nautahakki. Linda Ben uppskriftahönnuður á heiðurinn að uppskriftinni en hún heldur úti uppskriftasíðunni Lindaben.is

Djúsí ostapasta fyrir nautnaseggi

Uppskriftir | 19. maí 2024

Djúsí ostapasta með nautahakki eftir Lindu Ben.
Djúsí ostapasta með nautahakki eftir Lindu Ben. Ljósmynd/Linda Ben

Það er aldrei hægt að prófa of margar pastauppskriftir. Hér er á ferðinni sértaklega gómsæt pastauppskrift með nautahakki. Linda Ben uppskriftahönnuður á heiðurinn að uppskriftinni en hún heldur úti uppskriftasíðunni Lindaben.is

Það er aldrei hægt að prófa of margar pastauppskriftir. Hér er á ferðinni sértaklega gómsæt pastauppskrift með nautahakki. Linda Ben uppskriftahönnuður á heiðurinn að uppskriftinni en hún heldur úti uppskriftasíðunni Lindaben.is

Linda notar penne pasta í uppskriftina. Það sem gerir uppskriftina girnilega er kryddosturinn, mozarella-osturinn, sveppirnir og nautahakkið. Linda notar góð krydd á borð við oreganó og rósmarín auk þess sem hún notar ferska basilíku. Þetta er blanda sem getur einfaldlega ekki klikkað.

Djúsí ostapasta með nautahakki

  • 300 g penne pasta
  • 500 g nautahakk
  • 1/2 laukur 
  • 4 hvítlauksgeirar
  • 2 gulrætur
  • 250 g sveppir
  • Salt og pipar eftir smekk
  • 1 tsk. oreganó
  • 1/4 tsk. rósmarín
  • 1/2 tsk. basilíka
  • 350 g pastasósa
  • 250 ml rjómi 
  • 75 g hvítlauks kryddostur 
  • 230 g rifinn mozzarella ostur 
  • Fersk basilíka (má sleppa)

Aðferð: 

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum.
  3. Skerið laukinn og setjið hann á pönnu og steikið létt. Bætið nautahakkinu, rifnum hvítlauksrifum, smátt sneiddum gulrótum og sveppum á pönnuna og steikið þar til eldað í gegn.
  4. Bætið kryddunum út á pönnuna.
  5. Bætið pastasósunni og rjómanum á pönnuna, hrærið saman og látið malla í smá stund.
  6. Rífið hvítlauksostinn út á pönnuna og látið malla þar til hann hefur bráðnað saman við.
  7. Dreifið mozzarella yfir og bakið inn í ofni í u.þ.b. 15 mínútur eða þar til osturinn er byrjaður að gyllast.
mbl.is