Íranski forsetinn Ebrahim Raisi og utanríkisráðherra landsins, Hossein Amirabdollahian, voru um borð í þyrlu forsetans sem er sögð hafa lent í slysi.

BBC greinir frá því að þyrlan hafi lent harkalega eftir að hún komst í hann krappan vegna þoku í háloftunum. Ekki hafa allir miðlar greint frá sömu upplýsingum til þessa og var lengi óljóst hvort forsetinn sjálfur hefði verið um borð.
Atvikið átti sér stað í norðausturhluta landsins og eru björgunaraðgerðir í gangi en þyrlan var ein af þremur þyrlum forsetans sem voru á leið frá Aserbaísjan til borgarinnar Tabriz í Íran.
Innanríkisráðherra Íran, Ahmad Vahidi, segir viðbragðsaðila nú leggja kapp á að reyna að komast að þyrlunni en leitin hefur reynst þeim erfið sökum veðurfars.
Forsetinn er 63 ára að aldri og hlaut kjör til embættis forseta árið 2021 og er almennt álitinn harðlínuklerkur sem sé líklegur arftaki æðsta leiðtoga landsins, Ayatollah Khamenei, sem hefur verið við völd síðan árið 1989.