Vikan var svo sannarlega sólrík og seiðandi á Instagram. Margir virðast hafa fengið sig fullsadda þegar enn ein lægðin reið yfir landið í vikunni og flúðu út fyrir landsteinana á suðrænni slóðir. Hins vegar létu TikTok-stjörnurnar Guðmundur Emil Jóhannsson, betur þekktur sem Gummi Emil, og Estefan Leó Haraldsson, betur þekktur sem Ezzi, kuldann ekki stoppa sig og skelltu sér í sjóinn í Nauthólsvík.

Rúrik Gíslason kann að njóta lífsins.
Júnia Lin og Laufey Lin voru í góðum fíling.
Guðlaugur Þór Þórðarson ráðherra fagnaði brúðkaupsafmælinu en hann og Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar gengu í hjónaband 12. maí fyrir meira en tveimur áratugum.
Bassi Maraj var flottastur á Rottweiler tónleikunum.
Lára Clausen klæddi sig upp á og fagnaði vinkonu sinni!
Bríet Ísis Elfar, söngkona og gítarleikari, naut góðra stunda í Nashville.
Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi heimsótti Stykkishólm á dögunum og rifjaði upp gamla danstakta.
Annie Mist Þórisdóttir kíkti á æfingu aðeins tveimur vikum eftir fæðingu. Með í för var nýfæddur sonur hennar.
Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir fagnaði 31 árs afmæli sínu á dögunum. Hún eyddi deginum í góðra vina hópi.
Sandra Björg Helgadóttir og eiginmaður hennar Hilmar Arnarsson eiga von á sínu fyrstu barni. Þau komust að kyninu á skemmtilegan máta.
Tanja Ýr Ástþórsdóttir sleikti sólina í Svíþjóð.
Sunneva Eir Einarsdóttir gaf fylgjendum sínum skemmtilega innsýn í síðustu daga.
Knattspyrnukonan Glódís Perla Viggósdóttir fagnaði því að lið hennar Bayern München vann Þýskalandsmeistaratitilinn eftir 2:1 sigur á Bayer Leverkusen.
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir virðist hafa það afar gott í sólinni í Króatíu.
Knattspyrnumaðurinn Arnór Sigurðsson er sáttur með lokaútkomuna á bakflúrinu.
Tónlistarkonan Katrín Myrra Þrastardóttir var stödd í sannkallaðri paradís í Noregi.
TikTok-stjörnurnar Guðmundur Emil Jóhannsson, betur þekktur sem Gummi Emil, og Estefan Leó Haraldsson, betur þekktur sem Ezzi, skelltu sér í sjósund.
Flugfreyjan og þjálfarinn Sara Davíðsdóttir fagnaði 31 árs afmæli sínu við Miðjarðarhafið.
Það væsir ekki um sunddrottninguna og leikkonuna Ragnheiði Ragnarsdóttur sem er stödd í sólríku Kaliforníu.
Förðunarfræðingurinn Rakel María Hjaltadóttir er áhyggjulaus í Ksamil í Albaníu.
Fyrirsætan Birta Abiba skartaði flottu appelsínugulu bikiníi í sólinni!