Utanríkisráðherra Íslands hyggst ekki senda Írönum samúðarkveðjur þrátt fyrir að bæði forseti landsins og starfsbróðir ráðherrans hafi látið lífið í flugslysi um helgina.

Ebrahim Raisi, forseti Írans, og Hossein Amirabdollahian, utanríkisráðherra Írans, létust í þyrluslysi um helgina. Æðsti klerkur Írans, Ali Khameini, hefur lýst yfir fimm daga þjóðarsorg vegna dauða Raisi.
„Ég hef ekki gert það og hyggst ekki gera það,“ svarar Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra spurð hvort hún ætli að senda Írönum samúðarkveðjur.
Hún bendir aftur á móti á að slíkt verkefni falli oft í skaut forseta eða forsætisráðherra. Hún kveðst samt ekki vita hvort Bjarni Benediktsson forsætisráðherra eða Guðni Th. Jóhannesson forseti ætli að senda sínar samúðarkveðjur.
„Mín áhersla gagnvart Íran hefur til að mynda verið að leggja áherslu á stöðu almennra borgara þar og við höfum tekið það upp til að mynda með ályktun sem við lögðum fram í mannréttindaráði SÞ ásamt Þýskalandi, með sérstakra áherslu á stöðu kvenna í kjölfar morðsins á Möshu Amini,“ útskýrir Þórdís Kolbrún.
Mahsa Amini, 22 ára kúrdísk kona, lést í kjölfar handtöku árið 2022. Hafði hún þá brotið gegn á ströngum reglum Írana um notkun hijab-slæðu.
Ályktun Íslands og Þýskalands um að stofnuð yrði sjálfstæð og óháð rannsóknarnefnd til að safna upplýsingum sem nýst gætu til að draga þá til ábyrgðar sem ofsótt hafa friðsama mótmælendur í Íran var í samþykkt af mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna árið 2022.