Fjárfesta 332 milljónum í Hefring

Fjárfesta 332 milljónum í Hefring

Íslenska hátæknifyrirtækið Hefring Marine hefur tryggt sér 2,2 milljóna evra fjármögnun, jafnvirði 332 milljóna íslenskra króna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Um er að ræða fjárfestingu félaganna Faber Ventures, Innoport VC, Two Ravens, MD-One, Riverstone Ventures, Idlewild Management LLC og Sukna Holdings.

Fjárfesta 332 milljónum í Hefring

Nýsköpun og tækni í sjávarútvegi | 22. maí 2024

Karl Birgir Björgvinsson framkvæmdastjóri Hefring Marine.
Karl Birgir Björgvinsson framkvæmdastjóri Hefring Marine. Ljósmynd/Hefring

Íslenska hátæknifyrirtækið Hefring Marine hefur tryggt sér 2,2 milljóna evra fjármögnun, jafnvirði 332 milljóna íslenskra króna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Um er að ræða fjárfestingu félaganna Faber Ventures, Innoport VC, Two Ravens, MD-One, Riverstone Ventures, Idlewild Management LLC og Sukna Holdings.

Íslenska hátæknifyrirtækið Hefring Marine hefur tryggt sér 2,2 milljóna evra fjármögnun, jafnvirði 332 milljóna íslenskra króna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Um er að ræða fjárfestingu félaganna Faber Ventures, Innoport VC, Two Ravens, MD-One, Riverstone Ventures, Idlewild Management LLC og Sukna Holdings.

Hefring Marine sérhæfir sig í hönnun og smíði snjallsiglingatækja sem með gervigreind aðstoða skipstjórnendur að stýra sjóförum á sem öruggastan og hagkvæmastan hátt.

Nýverið var tilkynnt um samstarf Hefring Marine og skipsamíðastöðva SAFE Boats International, Diverse Marine og Archipelago Yachts. Þá hefur fyrirtækið átt í samstarfi við Landsbjörgu, TM og ítölsku strandgæsluna vegna búnaðarins.

mbl.is