Leikkonan Jennifer Garner er sögð halda með stjörnuhjónunum Ben Affleck og Jennifer Lopez. Garner er fyrrverandi eiginkona Affleck en sem móðir barna hans ber hún hag hans fyrir brjósti.

„Jennifer Garner hvetur Ben til þess að vinna í hjónbandinu við Jen,“ sagði heimildarmaður Us Weekly. „Hún styður samband þeirra heils hugar og vill ekkert meira en að hann sé hamingjusamur.“
Garner þekkir sjálf hversu erfitt það er að vera í ástarsambandi við stórstjörnu í kastljósi fjölmiðla.
Á undanförnum dögum hafa heyrst háværar raddir þess efnis að Affleck og Lopez eigi í hjónabandserfiðleikum. Lopez og Affleck áttu í ástarsambandi á árunum 2002 til 2004. Þau tóku saman aftur árið 2021, eftir 17 ára aðskilnað, og gengu í hjónaband tæpu ári síðar.