Tónlistarmaðurinn Patrik Snær Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, gaf út plötuna PBT 2.0 á miðnætti. Þetta er hans önnur plata en kappinn skaust upp á stjörnuhimininn fyrir ári síðan.

Um er að ræða níu laga skífu þar sem meðal annars tónlistarkonan Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir, oftast nefnd Gugusar, syngur með Patrik í laginu Horfir á mig.
Lagið Skína sem hann gerði ásamt tónlistarmanninum Loga Tómassyni, þekktur undir listamannsnafninu Luigi, hefur notið mikilla vinsælda síðan það kom út síðasta sumar en laginu hefur verið streymt meira en tveimur milljón sinnum á streymisveitunni Spotify.