Efling vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara

Kjaraviðræður | 27. maí 2024

Efling vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara

Efling hefur vísað kjaradeilu sinni við Reykjavíkurborg til ríkissáttasemjara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu. 

Efling vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara

Kjaraviðræður | 27. maí 2024

Samninganefnd Eflingar.
Samninganefnd Eflingar. Ljósmynd/aðend

Efling hefur vísað kjaradeilu sinni við Reykjavíkurborg til ríkissáttasemjara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu. 

Efling hefur vísað kjaradeilu sinni við Reykjavíkurborg til ríkissáttasemjara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu. 

„Efling lítur svo á að viðræður við Reykjavíkurborg hafi reynst árangurslausar en þær hafa staðið yfir síðan um miðjan apríl. Kjarasamningur Eflingar stéttarfélags og Reykjavíkurborgar rann út 1. apríl síðastliðinn,“ segir í tilkynningu.  

Segja upplifunina undarlega 

Þá segir að samninganefnd Eflingar hafi átt fjölda funda með samninganefnd Reykjavíkurborgar en lítið komist áfram. 

„Það er afskaplega undarlegt að upplifa að þrátt fyrir að við höfum komið því skýrt áleiðis, m.a. í kröfugerðinni okkar, að við ætlum að fylgja launastefnunni sem að mótuð var í kjarasamningum á almenna markaðnum, er borgin áhugalítil um að ræða bráðnauðsynleg umbótamál fyrir ómissandi starfsfólk sitt. Hófstilltar launahækkanir virðast ekki hafa vakið löngun til að ganga hratt og örugglega frá samningum við okkur. Við vonum að með því að vísa deilunni fari viðræður að skila árangri,“ segir í tilkynningu.  

mbl.is