Mike Tyson, fyrrverandi heimsmeistari í hnefaleikum, þurfti á hjálp að halda í miðju flugi frá Miami til Los Angeles á sunnudag. Hnefaleikakappinn fann fyrir ógleði og svima stuttu fyrir lendingu.

Að sögn kynningarfulltrúa Tyson þá var magasár valdurinn af flökurleika hans.
Hnefaleikakappinn fékk góða hjálp frá heilbrigðisstarfsfólki sem var um borð í vélinni og er að sögn aðstandenda búinn að ná sér að fullu.
Tyson snýr aftur í hringinn í sumar er hann berst við YouTube-stjörnuna Logan Paul í Arlington í Texas þann 20. júlí næstkomandi. Mikil spenna ríkir fyrir bardaganum og hafa miðarnir rokið út.
Fer bardaginn fram á heimavelli ruðningsliðsins Dallas Cowboys en leikvangurinn rúmar 80.000 manns.