Kourtney Kardashian og eiginmaður hennar Travis Barker eignuðust sitt fyrsta barn saman á síðasta ári eftir að hafa reynt í þrjú ár. Ferlið var ekki auðvelt fyrir hjónin sem fóru í gegnum nokkrar frjósemismeðferðir áður en Kardashian varð ófrísk.

Á dögunum opnaði Kardashian sig meira um ferlið og sagði frá því að hún hafi farið í gegnum fimm glasafjóvgunarmeðferðir og þrjár eggheimtur áður en hún varð óvænt ófrísk með náttúrulegum hætti.
Spurð hvernig hún hafi fundið styrkinn til að halda áfram í ferlinu svaraði Kardashian: „Ég hætti eftir að hafa reynt í eitt ár (fimm misheppnaðar glasafrjóvgunarmeðferðir, þrjár eggheimtur) líkaminn minn náði að slaka á og ég trúði á vegferðina sem Guð hefur gert fyrir líf mitt.“
Þá segir hún bænir og trúna hafa hjálpað sér mikið í gegnum ferlið, en á sama tíma hafi verið mikilvægt fyrir hana að huga að heilsunni.
Kardashian og Barker hafa verið áberandi í fjölmiðlum frá því ástarsamband þeirra hófst, en þau gengu í það heilaga við glæsilega athöfn í rándýrum kastala á Ítalíu árið 2022.
Frá því hjónin tilkynntu að þau væru að reyna við barneignir hafa þau talað opinskátt um ferlið, en það reyndist þeim báðum erfitt bæði andlega og líkamlega.