Linda Benediktsdóttir, athafnakona og matarstílisti, skellti sér í helgarferð til Surrey á Englandi ásamt eiginmanni sínum Ragnari Einarssyni.

Hjónin nutu ljúfra stunda á Foxhills-sveitaklúbbnum og fullkomnuðu golfsveifluna í blíðviðri, umkringd trjám og trjágróðri.
Linda deildi skemmtilegum myndum frá ferð þeirra hjóna á Instagram-reikningi sínum og birti einnig myndskeið af golfsveiflunni. Af því að dæma virðist hún tilbúin til þátttöku í íslensku mótaröð atvinnumanna.
„Það sem ég er þakklát fyrir helgarferð með mínum, umvafin þessu gullfallega umhverfi,“ skrifaði Linda við myndaseríuna sem hún deildi með fylgjendum sínum.
Linda og Ragnar hafa verið saman í 15 ár en þau gengu í hjónaband í september 2022 á Ítalíu. Saman eiga hjónin tvö börn.