Forsetaframbjóðendur mættust á bryggjunni fyrir framan Brim í Reykjavíkurhöfn í gær til þess að keppa í flökun og hnýtingu. Eða allir nema Jón Gnarr, sem var í tökum á nýrri íslenskri sjónvarpsþáttaröð.

Markmiðið var að fá frambjóðendur til að tengja sig grundvallaratvinnugrein Íslands sem er sjávarútvegur en Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á sunnudaginn.
Aríel Pétursson formaður Sjómannadagsráðs stýrði keppninni og Bolli Már Bjarnason útvarpsstjarna á K100 lýsti keppninni. Eins og sjá má á myndunum komu forstaframbjóðendur fram eins og þeir eru klæddir. Í lopapeysum og án mikillar förðunar nema náttúrlega Ásdís Rán Gunnarsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Ásdís Rán var vel förðuð og Steinunn Ólína eins og hún væri á leiðinni á Kaffibarinn. Halla Hrund Logadóttir var alls ekki á leiðinni á Kaffibarinn og mætti með „óDysonað“ hár. Viktor Traustason skartaði rauðu elítuhúfunni á meðan Helga Þórisdóttir var alþýðleg í Cintamani flíspeysu sem er þjóðbúningur úthverfanna - ekki þó í Fossvoginum þar sem Helga býr. Þar er meira verið að vinna með franska merkjavöru.
Arnar Þór Jónsson býr í Garðabænum og var í svokölluðu Garðabæjarvesti sem er frá Parajumpers. Merkið hefur notið vinsælda hjá elítu landsins en vörurnar þekkjast á gulum borða sem festur er á flíkur í kringum hálsmálið. Halla Tómasdóttir klæddist lopapeysu frá íslenska merkinu Farmers Market en merkið hefur notið mikilla vinsælda hjá íslensku sumarkonunni.
Hér fyrir neðan er hægt að horfa á keppnina en Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi fékk flest stig.