Bandaríski leikarinn Ben Affleck mætti einsamall í útskrift elsta barns síns á mánudag. Eiginkona hans, söng- og leikkonan Jennifer Lopez, var hvergi sjáanleg í útskrift stjúpdóttur sinnar en leikkonan hefur verið önnum kafinn við að kynna nýjustu kvikmynd sína, Atlas, síðastliðnar vikur.

Fjarvera Lopez kynti undir vangaveltur og sögusagnir um skilnað Hollywood-hjónanna en parið hefur lítið sést saman undanfarið.
Ljósmyndari náði myndum af Affleck er hann mætti á athöfni dóttur sinnar í Los Angeles og var leikarinn hversdagslegur til fara, klæddur ljósum jakkafatajakka, gallabuxum og leðurstígvélum. Sérstaka athygli vakti að Affleck var með giftingarhringinn.
Affleck og Lopez áttu í ástarsambandi á árunum 2002 til 2004. Þau tóku saman aftur árið 2021, eftir 17 ára aðskilnað, og gengu í hjónaband tæpu ári síðar í Las Vegas.