Við Kolagötu 1 í Reykjavík er að finna 232 fm íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi sem byggt var 2018. Íbúðin var auglýst til sölu í maí í fyrra en er nú seld. Íbúðin var í eigu Kjartans Páls Guðmundssonar en dóttir hans Viktoría Kjartansdóttir, sem er með BA próf í arkitektúr, hannaði íbúðina að innan og var ekkert til sparað.

Dökkar innréttingar setja svip sinn á íbúðina en sami viður er notaður í allar innréttingar í eldhúsi, á baðherbergjum, í innihurðum og loftklæðningum.
Stofa og eldhús tengjast og setur einstaklega glæsilegur marmari svip sinn á eyjuna í eldhúsinu og líka á rýmið í kringum vaskinn í eldhúsinu. Á gólfunum í eldhúsinu eru sandlitaðar flísar.
Úr íbúðinni er fallegt útsýni yfir sundin blá og Esjuna.
Félagið Hólmi ehf. keypti íbúðina á 382.500.000 kr. Félagið er í eigu Þorsteins Kristjánssonar og Bjarkar Aðalsteinsdóttur sem hvor um sig eiga 36,5% hlut í félaginu. Aðalsteinn Jónsson Þorsteinsson, Daði Þorsteinsson, Erna Þorsteinsdóttir og Guðjón Þorsteinsson eiga hver um sig 9,1% hlut í félaginu.
Smartland óskar þeim til hamingju með íbúðina!