Verðbólgan hækkar lítillega

Vextir á Íslandi | 30. maí 2024

Verðbólgan hækkar lítillega

Tólf mánaða verðbólga mælist nú 6,2% og hækkar því um 0,2 prósentustig frá síðasta mánuði þegar hún mældist 6%.

Verðbólgan hækkar lítillega

Vextir á Íslandi | 30. maí 2024

12 mánaða verðbólga mælist 6,2%.
12 mánaða verðbólga mælist 6,2%. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tólf mánaða verðbólga mælist nú 6,2% og hækkar því um 0,2 prósentustig frá síðasta mánuði þegar hún mældist 6%.

Tólf mánaða verðbólga mælist nú 6,2% og hækkar því um 0,2 prósentustig frá síðasta mánuði þegar hún mældist 6%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands.

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í maí 2024, er 627,3 stig og hækkar um 0,58% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 508,5 stig og hækkar um 0,51% frá apríl 2024.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) jókst um 0,7%.

mbl.is