Diljá Ólafsdóttir og Elín Björg Björnsdóttir, eigendur verslunarinnar Fou22, buðu í mikið gelluboð á veitingastaðnum Rok á miðvikudaginn. Veðrið hefur ekki verið sérlega sumarlegt en um leið og teitið byrjaði opnuðust himnarnir og sólin fór að skína.

Mikið var lagt upp úr góðri stemningu og var gestalistinn rándýr. Pattra, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Salka Sól Eyfjörð, Birna Rún Eiríksdóttir og Kristín Pétursdóttir voru á meðal gesta. Þar var líka Marta Matthíasdóttir og Hulda Halldóra Tryggvadóttir svo einhverjar séu nefndar.
Plötusnúðurinn Sigrún Skafta þeytti skífum uppi á svölum og svo var boðið upp á Moét kampavín, lakkrís og melónu svo eitthvað sé nefnt. Staðurinn var svo skreyttur að hætti blómabúðarinnar 4 árstíðir.
Eins og sjá má á myndunum eru gallajakkar móðins núna, leðurjakkar, blómakjólar og kisulaga sólgleraugu!