Söng- og leikkonan Jennifer Lopez og eiginmaður hennar, leikarinn Ben Affleck, mættu saman í útskriftarveislu elstu dóttur sinnar, Violet.

Affleck mætti einsamall á útskriftarathöfnina og Lopez var hvergi sjáanleg en hún hefur verið önnum kafin við að kynna nýjustu kvikmynd sína, Atlas, undanfarnar vikur.
Ljósmyndari náði myndum af þeim hjónum sameinuðum haldandi á stórri útskriftargjöf á götum Los Angeles til að fagna með dóttur sinni. Lopez fór hins vegar fljótlega úr veislunni en hún var þar í aðeins tæplega klukkustund.
Samband Affleck og Lopez hefur verið stormasamt í gegnum tíðina en þau áttu fyrst í ástarsambandi á árunum 2002 til 2004. Þau tóku saman aftur árið 2021, eftir 17 ára aðskilnað, og gengu í hjónaband tæpu ári síðar í Las Vegas. Nú er spurningin hvort þau komast aftur upp úr þessari lægð í ástarlífi þeirra.