Kaup Síldarvinnslunnar ganga til baka

Síldarvinnslan | 2. júní 2024

Kaup Síldarvinnslunnar ganga til baka

Kaup Síldarvinnslunnar hf. á Ice Fresh Seafood ehf. ganga til baka.

Kaup Síldarvinnslunnar ganga til baka

Síldarvinnslan | 2. júní 2024

Síldarvinnslan á Neskaupstað.
Síldarvinnslan á Neskaupstað. Ljósmynd/Guðlaugur B. Birgisson

Kaup Síldarvinnslunnar hf. á Ice Fresh Seafood ehf. ganga til baka.

Kaup Síldarvinnslunnar hf. á Ice Fresh Seafood ehf. ganga til baka.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Síldarvinnslunni nú í kvöld.

Þar segir að stjórn Síldarvinnslunnar hafi samþykkt beiðni Samherja hf. um að kaup félagsins á helmingshlut í sölufyrirtækinu Ice Fresh Seafood ehf. gangi til baka. 

Tilkynnt var um kaupin í september í fyrra með hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

„Að mati stjórnar Síldarvinnslunnar hf. hefur Samkeppniseftirlitið farið offari við skoðun málsins og gagnabeiðnir í engu samræmi við umgjörð viðskiptanna, sérstaklega í því ljósi að eingöngu er um að ræða sölu afurða á erlendum mörkuðum. Því líti út fyrir að gagnaöflunin sé farin að snúast um annað og meira en umrædd viðskipti,“ segir í tilkynningunni.

Í tilkynningunni segir einnig að Síldarvinnslan hafi afhent Samkeppniseftirlitinu öll gögn sem óskað hafi verið eftir og séu á forræði félagsins. Mikill vilji hafi verið til að klára þessi viðskipti enda aðdragandinn langur og ávinningur fyrir íslenskan sjávarútveg augljós.

Ákvörðunin tekin með hagsmuni félagsins í huga

„Ákvörðun stjórnar Síldarvinnslunnar hf. er tekin með hagsmuni félagsins í huga. Er það ekki síst vegna viðamikilla verkefna í kringum starfsemi Vísis ehf. í Grindavík en í liðinni viku hófst enn á ný eldgos í námunda við bæjarfélagið,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur í tilkynningunni að það sé mat stjórnenda Síldarvinnslunnar hf. að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að styrkja stöðu sína til að viðhalda samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi, þar sem hlutdeild Íslands er agnarsmá.

Nauðsynlegt er fyrir íslenskan sjávarútveg í heild sinni að mæta þessum áskorunum erlendis með því að styrkja alþjóðleg sölufyrirtæki, sem geta keppt við þessa risa á grundvelli afhendingaröryggis, verðs og gæða,“ segir að lokum í tilkynningunni.

mbl.is