Náði óborganlegum myndum af sjö daga gömlu barni

Instagram | 2. júní 2024

Ljósmyndir úr ungbarnamyndatöku hafa farið eins og eldur í sinu um netheima undanfarna daga. Bandaríski ljósmyndarinn Lauren Carson náði óborganlegum myndum af sjö daga gömlum dreng sem mætti ásamt móður sinni í fyrstu myndatökuna.

Það er gaman að geifla sig.
Það er gaman að geifla sig. Ljósmynd/Unsplash/Saiid Bel

Ljósmyndir úr ungbarnamyndatöku hafa farið eins og eldur í sinu um netheima undanfarna daga. Bandaríski ljósmyndarinn Lauren Carson náði óborganlegum myndum af sjö daga gömlum dreng sem mætti ásamt móður sinni í fyrstu myndatökuna.

Ljósmyndir úr ungbarnamyndatöku hafa farið eins og eldur í sinu um netheima undanfarna daga. Bandaríski ljósmyndarinn Lauren Carson náði óborganlegum myndum af sjö daga gömlum dreng sem mætti ásamt móður sinni í fyrstu myndatökuna.

Carson, sem sérhæfir sig í nýbura-, barna- og fjölskyldumyndatökum, gat ekki annað en deilt myndum úr tökunni á samfélagsmiðlasíðum sínum og ekki leið á löngu þar til myndirnar gripu athygli bandaríska morgunþáttarins Good Morning America og annarra þarlendra miðla.

Drengurinn, sem heitir Trent Mundy, virtist allt annað en sáttur og setti upp skoplegan og fýlulegan svip í hvert sinn sem Carson greip í myndavélina. Af myndum að dæma hefði Mundy viljað verja tíma sínum í eitthvað mun skemmtilegra.

Tæplega 160.000 manns hafa líkað við Facebook-færslu Carson enda eru myndirnar hver annarri kostulegri.

mbl.is