Klára skammtinn um mánaðamót

Strandveiðar | 3. júní 2024

Klára skammtinn um mánaðamót

Allar líkur eru á að þau 10 þúsund tonn af þorski sem ætluð eru strandveiðiflotanum verði uppurin um eða upp úr næstu mánaðamótum, en aflabrögð í maí voru með ágætum og gæftir góðar. Þetta segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, í samtali við Morgunblaðið.

Klára skammtinn um mánaðamót

Strandveiðar | 3. júní 2024

Rífandi gangur hefur verið í strandveiðum á veiðitímabilinu og útlit …
Rífandi gangur hefur verið í strandveiðum á veiðitímabilinu og útlit fyrir að veiðiheimildir verði uppurnar um mánaðamót mbl.is/Þorgeir

Allar líkur eru á að þau 10 þúsund tonn af þorski sem ætluð eru strandveiðiflotanum verði uppurin um eða upp úr næstu mánaðamótum, en aflabrögð í maí voru með ágætum og gæftir góðar. Þetta segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, í samtali við Morgunblaðið.

Allar líkur eru á að þau 10 þúsund tonn af þorski sem ætluð eru strandveiðiflotanum verði uppurin um eða upp úr næstu mánaðamótum, en aflabrögð í maí voru með ágætum og gæftir góðar. Þetta segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, í samtali við Morgunblaðið.

Gangi það eftir verða engar strandveiðar stundaðar í júlí og ágúst, en strandveiðitímabilið stendur út ágústmánuð, að því gefnu að veiðiheimildir verði fyrir hendi. En svo mun tæpast verða að óbreyttu.

„Það hefur fiskast mjög vel, en 700 bátar stunduðu veiðarnar í maí. Það er 52 bátum fleira en á sama tíma í fyrra,“ segir Örn.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.

mbl.is