Sonur Jóns Daða og Maríu kominn með nafn

Barnanöfn | 3. júní 2024

Sonur Jóns Daða og Maríu kominn með nafn

Knatt­spyrnumaður­inn Jón Daði Böðvars­son og viðskipta­fræðing­ur­inn María Ósk Skúla­dótt­ir greindu frá nafni sonar síns um helgina. Sonurinn fékk nafnið Emil Atli. 

Sonur Jóns Daða og Maríu kominn með nafn

Barnanöfn | 3. júní 2024

María Ósk Skúladóttir og Jón Daði Böðvarsson eignuðust dótturina Sunnevu …
María Ósk Skúladóttir og Jón Daði Böðvarsson eignuðust dótturina Sunnevu Sif árið 2019. Nú er yngra barn þeirra komið með nafn.

Knatt­spyrnumaður­inn Jón Daði Böðvars­son og viðskipta­fræðing­ur­inn María Ósk Skúla­dótt­ir greindu frá nafni sonar síns um helgina. Sonurinn fékk nafnið Emil Atli. 

Knatt­spyrnumaður­inn Jón Daði Böðvars­son og viðskipta­fræðing­ur­inn María Ósk Skúla­dótt­ir greindu frá nafni sonar síns um helgina. Sonurinn fékk nafnið Emil Atli. 

„Emil Atli Jónsson,“ skrifuðu foreldrarnir við krúttlega mynd af syninum í peysu með nafninu sínu. 

Fyrri meðgang­an ekki sú auðveld­asta

Emil Atli er annað barn Jóns Daða og Maríu. 

Árið 2022 fór María í ein­lægt viðtal á fjöl­skyldu­vef mbl.is þar sem hún ræddi um móður­hlut­verkið, meðgöngu og fæðingu dótt­ur þeirra sem kom í heim­inn árið 2019. Meðgang­an var ekki sú auðveld­asta fyr­ir Maríu, en hún greind­ist með hyp­ereeisi gra­vi­d­ar­um (HG) sem fel­ur í sér mikla ógleði og upp­köst, langt umfram það sem talið er eðli­legt. Hún jafnaði sig þó eft­ir 20. viku meðgöng­unn­ar.

Fjölskylduvefur mbl.is óskar drengnum til hamingju með þetta fallega nafn!

View this post on Instagram

A post shared by MARÍA ÓSK (@mariaosk22)

mbl.is