Stendur vaktina þar til annað kemur í ljós

Forsetakosningar 2024 | 3. júní 2024

Stendur vaktina þar til annað kemur í ljós

„Maður tekur þátt í leik til þess að vinna hann. Það greinilega náðist ekki þannig að maður er náttúrulega bara mannlegur hvað það varðar,“ segir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, innt eftir viðbrögðum við niðurstöðum forsetakosninganna. 

Stendur vaktina þar til annað kemur í ljós

Forsetakosningar 2024 | 3. júní 2024

Helga Þórisdóttir snýr aftur til Persónuverndar eftir leyfi vegna framboðs …
Helga Þórisdóttir snýr aftur til Persónuverndar eftir leyfi vegna framboðs til embættis forseta Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Maður tekur þátt í leik til þess að vinna hann. Það greinilega náðist ekki þannig að maður er náttúrulega bara mannlegur hvað það varðar,“ segir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, innt eftir viðbrögðum við niðurstöðum forsetakosninganna. 

„Maður tekur þátt í leik til þess að vinna hann. Það greinilega náðist ekki þannig að maður er náttúrulega bara mannlegur hvað það varðar,“ segir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, innt eftir viðbrögðum við niðurstöðum forsetakosninganna. 

Helga, sem hefur verið í leyfi frá störfum forstjóra Persónuverndar síðan hún tilkynnti um framboð sitt í lok mars, fékk alls 275 atkvæði í kosningunum, eða 0,1%. Hún segir kosningu Höllu Tómasdóttur hafa verið glæsilega og óskar henni til hamingju með það.

Þarf að eiga salt í sinn graut

Spurð hvað taki nú við og hvort hún sé á leið aftur til Persónuverndar svarar Helga: 

„Já, ég meina ég var náttúrulega bara í leyfi.“

Helga kveðst hafa fengið mikla aukna orku af gleðinni sem fylgdi kosningabaráttunni, „þó hún hafi ekki skilað sér í kassana“.

„Það gefur manni aukna orku og styrk, en vissulega þarf ég að ná fyrri kröftum,“ segir Helga sem kveðst ætla að taka sér sumarfrí. 

„Svo þarf ég að eiga salt í minn graut og stend bara mína vakt þar til annað kemur í ljós.“ 

„Mögnuð lífsreynsla“ 

Helga segir kosningabaráttuna hafa verið eitt mesta tækifæri sem hún hefur tekist á við og einn áhugaverðasti ferill sem hún hefur farið í gegnum. 

„Eftir stendur jákvæðnin, gleðin og snertingar við fólk út um allt land. Það að hafa verði löglegur forsetaframbjóðandi var mögnuð lífsreynsla.“

Þannig að þú lærðir margt af þessu? 

„Já, mér líður best meðal fólks. Það er bara þannig og það var fallegt og gefandi. Að sama skapi var ýmislegt alvarlegt sem gerðist á þessum ferli líka,“ segir Helga og útskýrir mál sitt fyrir blaðamanni. 

„Eins og það þegar einkareknir fjölmiðlar með ríkisstyrk til að tryggja lýðræðislega umræðu ákveða að loka fyrir neðri part hópsins út frá skoðanamyndandi skoðanakönnunum.“ 

„Þar með var það bara búið,“ segir Helga ósátt við útspil fjölmiðla í kosningabaráttunni.  

„Það var gríðarlega afdrifarík ákvörðun

Helga segir eitt að skoðanamyndandi kannanir séu birtar og að nú sé verið að sýna fram á allskyns tengsl frambjóðenda við þær. Þá sé annað að einkareknir fjölmiðlar með ríkisstyrk fyrir lýðræðislegri umræðu „afhausi helming frambjóðenda þegar langt er í kjördag“.

„Það var gríðarlega afdrifarík ákvörðun.“ Hún nefnir sem dæmi að Morgunblaðið og mbl.is hafi haldið kosningafundi fyrir þann hóp frambjóðenda sem hafði 10% fylgis eða meira í könnunum. 

„Ef maður lítur bara kalt á það þá er búið að afhausa restina. Það þarf eitthvað mikið að gerast til að restin nái sér á strik.“ 

Já, það er ákveðið sjónarmið. 

„Nei það er bara staðreynd.“ 

Er það eitthvað sem þér finnst að þurfi að endurskoða? 

Já, þetta er bara lærdómsfasi sem ég held að við sem þjóð þurfum að skoða,“ segir Helga og bætir við: 

„En eftir hjá mér stendur gleði og þakklæti fyrir snertingar við fólk út um allt land og alla hina.“ 

mbl.is