Leggja niður starf Sigurðar hjá Kviku

Landsbankinn kaupir TM | 4. júní 2024

Leggja niður starf Sigurðar hjá Kviku

Kvika banki hefur gert starfslokasamning við Sigurð Viðarsson, aðstoðarforstjóra Kviku, vegna breytinga á starfsemi skrifstofu forstjóra í kjölfar sölunnar á TM. Staða aðstoðarforstjóra verður lögð niður og verkefni færast á aðra stjórnendur í bankanum.

Leggja niður starf Sigurðar hjá Kviku

Landsbankinn kaupir TM | 4. júní 2024

Sigurður Viðarsson, aðstoðarfortjóri Kviku, hefur gert starfslokasamning við bankann.
Sigurður Viðarsson, aðstoðarfortjóri Kviku, hefur gert starfslokasamning við bankann. mbl.is/Hari

Kvika banki hefur gert starfslokasamning við Sigurð Viðarsson, aðstoðarforstjóra Kviku, vegna breytinga á starfsemi skrifstofu forstjóra í kjölfar sölunnar á TM. Staða aðstoðarforstjóra verður lögð niður og verkefni færast á aðra stjórnendur í bankanum.

Kvika banki hefur gert starfslokasamning við Sigurð Viðarsson, aðstoðarforstjóra Kviku, vegna breytinga á starfsemi skrifstofu forstjóra í kjölfar sölunnar á TM. Staða aðstoðarforstjóra verður lögð niður og verkefni færast á aðra stjórnendur í bankanum.

Þá hefur Magnús Þór Gylfason, forstöðumaður samskipta og hagaðilatengsla, einnig samið um starfslok sín hjá bankanum og staðan verður í kjölfarið lögð niður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kviku. 

Varð forstjóri TM árið 2007

„Sigurður mun vera stjórnendum innan handar til að tryggja örugga samfellu í yfirfærslu verkefna innan bankans og sitja í stjórnum félaga innan samstæðu Kviku fram á haust,“ segir í tilkynningunni.

Sigurður hóf störf sem forstjóri TM í október 2007 og var forstjóri TM samfellt frá árinu 2007 þar til hann tók við sem aðstoðarforstjóri Kviku í lok árs 2022.

„Ég vil nota tækifærið og þakka Sigurði Viðarssyni kærlega fyrir frábært samstarf í gegnum árin og fyrir hans mikilvæga framlag fyrir bankann. Sigurður hefur reynst öflugur stjórnandi og góður félagi. Hann hefur á farsælan hátt leitt krefjandi breytingarferli í kjölfar samruna TM og Kviku og verið í forystuhlutverki í söluferli á TM. Sigurður hefur átt mjög farsælan feril sem forstjóri TM og síðar aðstoðarforstjóri Kviku,“ er haft eftir Ármanni Þorvaldssyni, forstjóra Kviku, í tilkynningunni. 

Ármann þakkar Sigurði fyrir árangursríkt samstarf og vel unnin störf. 

Kveður Kviku með söknuði

„Þá verður einnig mikil eftirsjá af Magnúsi, sem mun þó áfram vera bankanum innan handar í ráðgjafarhlutverki. Ég óska honum alls hins besta í öðrum þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur,” er haft eftir Ármanni. 

Haft er eftir Sigurði Viðarssyni að hann kveðji Kviku og alla starfsmenn bankans með söknuði og þakklæti, en þó með tilhlökkun yfir því sem koma skal í framtíðinni.

„Síðustu 17 ár hafa verið ótrúlega krefjandi og skemmtileg bæði hjá TM og Kviku. Ég skil afar sáttur við góða stöðu hjá Kviku og TM á þessum tímamótum. Fram undan eru mikil tækifæri fyrir frekari vöxt og uppbyggingu bankans í kjölfar sölu á TM,“ er haft eftir Sigurði.

mbl.is