Stutt við kaup á nýju björgunarskipi

Öryggi sjófarenda | 4. júní 2024

Stutt við kaup á nýju björgunarskipi

„Okkur á Snæfellsnesi er mikilvægt að starfandi séu öflugar björgunarsveitir. Þetta skiptir miklu fyrir sjávarútveginn og því er okkur kært að geta lagt lið,“ segir Ragnar Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar Íslands ehf. í samtali við Morgunblaðið.

Stutt við kaup á nýju björgunarskipi

Öryggi sjófarenda | 4. júní 2024

Ragnar Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar Íslands, Hafrún Ævarsdóttir og Höskuldur …
Ragnar Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar Íslands, Hafrún Ævarsdóttir og Höskuldur Árnason björgunarsveitafólk og Guðmundur Smári Guðmundsson stjórnarformaður FMIS

„Okkur á Snæfellsnesi er mikilvægt að starfandi séu öflugar björgunarsveitir. Þetta skiptir miklu fyrir sjávarútveginn og því er okkur kært að geta lagt lið,“ segir Ragnar Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar Íslands ehf. í samtali við Morgunblaðið.

„Okkur á Snæfellsnesi er mikilvægt að starfandi séu öflugar björgunarsveitir. Þetta skiptir miklu fyrir sjávarútveginn og því er okkur kært að geta lagt lið,“ segir Ragnar Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar Íslands ehf. í samtali við Morgunblaðið.

Aðalfundur félagsins var haldinn á dögunum og við það tilefni var Björgunarbátasjóði Snæfellness afhentur einnar milljónar króna styrkur. Undir merkjum þess sjóðs er nú safnað fyrir kaupum á nýju björgunarskipi sem væntanlegt er undir lok þessa árs.

Safnast þegar saman kemur

Síðustu ár hefur verið unnið að endurnýjun á flota björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar (SL) sem eru hringinn í kringum landið. Nokkur skip eru komin og þess sem fer á Snæfellsnes og verður með heimahöfn á Rifi er vænst í haust. Skemmst er frá því að segja að nokkur áskorun er að kaupa skip.

Nýr gripur kostar 324 millj. kr. Samkvæmt samkomulagi greiðir ríkið helming og fjórðungur kemur frá SL. Það sem upp á vantar, það er ¼, er hlutur björgunarbátasjóðsins sem þarf að leggja til 81 milljón kr.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.

mbl.is