Sólarlandaferðir eru alltaf vinsælar meðal Íslendinga, enda fátt sem toppar það að hlaða batteríin á hlýrri og sólríkari slóðum – sérstaklega þegar veðurguðirnir taka upp á því að demba snjókomu og appelsínugulum viðvörunum yfir landið í júní!

Sólþyrstir landsmenn þurfa þó ekki að hafa áhyggjur því það er nóg af sól annars staðar í heiminum, en þar er líka nóg af fallegum ströndum.
Á dögunum gaf FEE, stofnun sem sér um umhverfisfræðslu í Kaupmannahöfn, út lista yfir þau lönd sem eru með flestar Bláfánastrendur og þar af leiðandi hreinustu strendur heims. Verkefnið gefur viðurkenningu fyrir strandartímabil á ári hverju, sem oftast er frá 1. júní til 15. september, fyrir strendur, smábátahafnir og ferðaþjónustubáta á grundvelli strangra vatnsgæða auk umhverfismála-, menntunar-, öryggis-, og aðgengistengdra viðmiða.
Á listanum eru þau fimm lönd sem tróna á toppi listans í ár, en samanlagt eru löndin fimm með 2.635 Bláfánavottaðar strendur.
1. Spánn
Það land sem er með flestar Bláfánavottaðar strendur í heimi er Spánn, en landið státar af hvorki meira né minna en 628 vottuðum ströndum. Þetta er í þriðja sinn sem Spánn trónir á toppi listans, en árið 2022 setti landið heimsmet Guinness fyrir flestar Bláfánastrendur.
2. Grikkland
Rétt á eftir Spáni kemur Grikkland með næstflestar Bláfánavottaðar strendur í heimi, eða 596 talsins. Þar af eru 94 strendur á Halkidiki svæðinu í norðurhluta landsins. Þess má geta að Kampoudi-ströndin, sem er staðsett náægt Ouranoupolis svæðinu, hefur hlotið þrjá Bláfána á hverju ári síðan 1951.
3. Tyrkland
Tyrkland er í þriðja sæti listans með 551 Bláfánavottaðar strendur. Í Antalya-héraði, sem þekkt er fyrir friðsæla og töfrandi strandlengju sína, eru hvorki meira né minna en 231 vottaðar strendur – þar á meðal Lara-ströndin sem er átta kílómetrar að lengd.
4. Ítalía
Í fjórða sæti er Ítalía, sem er einn vinsælasti sólarlandaáfangastaður heims, með um átta þúsund kílómetra langri strandlengju og 457 Bláfánavottuðum ströndum. Meðfram ítölsku rivíerunni er Liguria sem er eina svæðið á Ítalíu sem hefur fengið 34 Bláfána í 14 ár í röð.
5. Frakkland
Frakkland er í fimmta sæti listans með 403 Bláfánavottuðum ströndum. Ein af nýjustu ströndunum til þess að fá vottun er Plage de Trez Goarem sem staðsett er á vernduðu svæði í hæðóttum norðvesturhluta Bratagne.